SSON heldur Fischer slembiskákmót í Fischersetri laugardaginn 7. október kl. 11.

Tefldarverða 7 umferðir og tímamörkin eru 10 mínútur á hverja skák að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik.
Teflt er í einum flokki.
Mótið er öllum opið og það þarf ekki að skrá sig fyrirfram.
Þátttökugjald er 1500 krónur.
Allir velkomnir og vegleg verðlaun í boði.
1. sæti 25.000 krónur.
2. sæti 15.000 krónur.
3. sæti 10.000 krónur.
Auk þess verða aðrir vinningar í boði.

Skákdómari er Róbert Lagerman og umsjónarmaður mótsins er Ari Björn Össurarson.

Til að hafa samband við mótshaldara vinsamlegast sendið tölvupóst á:
ari.bjorn@gmail.com