Davíð Kjartansson er þrefaldur Suðurlandsmeistari.

0
414

Suðurlandsmótið í skák var haldið í Fischersetrinu á Selfossi síðastliðinn laugardag, 3. febrúar.
Mættu 22 skákmenn til leiks og voru tefldar 8 umferðir.
Róbert Lagerman bar sigur úr býtum og vann alla sína andstæðinga. Davíð Kjartansson endaði í öðru sæti með 7 vinninga og var jafnframt krýndur Suðurlandsmeistari þriðja árið í röð þar sem hann varð efstur heimamanna. Erlingur Jensson varð þriðji .

Efstur skákmanna undir 18 ára var Gabriel Landmark frá Írlandi.

Ari Björn Össurarson annaðist framkvæmd mótsins og sigurvegarinn

Róbert Lagerman var skákdómari.

Lokaniðurstöður mótsins má sjá hér: https://chess-results.com/tnr880301.aspx?lan=1&art=4&flag=30