Firmakeppni Skákfélags Selfoss og nágrennis (SSON) fór fram á Hótel Selfossi sunnudaginn 7. júní sl. Alls tóku 34 skákmenn þátt í mótinu og tefldi hver þeirra fyrir hönd eins af þeim fyrirtækjum sem styrktu félagið í tengslum við mótið. Á meðal þátttakenda voru þrír stórmeistarar, þrír alþjóðlegir meistarar og einn FIDE-meistari. Keppendur voru á ýmsum aldri, sá yngsti fæddur 2013 og sá elsti 1944. Athygli vakti hve margir efnilegir skákmenn af yngri kynslóðinni mættu til leiks, sérstaklega frá skákdeild Breiðabliks. Tefldar voru 9 umferðir og var umhugsunartíminn 4 mínútur auk 2 sekúndna til viðbótar fyrir hvern leik.

Hér má sjá flesta keppendur mótsins.

Mótið var æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í lokaumferðinni. Svo fór að stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson hafði sigur með 7,5 vinninga. Hann tefldi fyrir hönd Hótel Selfoss. Jafnir honum að vinningum urðu stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson, sem tefldi fyrir SG Húseiningar, og alþjóðlegi meistarinn Arnar Gunnarsson, sem tefldi fyrir Ísey skyr. Fjórði, með 6,5 vinninga, varð FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson sem tefldi fyrir Heimilistæki.

Frá vinstri: Róbert Lagerman skákstóri mótsins, Helgi Áss Grétarsson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Ingimundur Sigurmundsson formaður SSON. Garðyrkjustöðin Espiflöt gaf blómvendina.

Ein athyglisverðustu úrslit mótsins urðu í lokaumferðinni þegar heimamaðurinn Úlfhéðinn Sigurmundsson, sem tefldi fyrir Hótel Selfoss, lagði Vigni Vatnar að velli. Með því tryggði Úlfhéðinn sér 7. sætið á mótinu, með 6 vinninga, og gerði um leið út um möguleika Vignis á að sigra á mótinu.

Úlfhéðinn Sigurmundsson (til vinstri) að tafli við Vigni Vatnar Stefánsson.

Jafnir Úlfhéðni að vinningum en hærri að stigum urðu stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson, sem tefldi fyrir Brim hf., og Gauti Páll Jónsson sem tefldi fyrir VÍS. Bragi Hafnaði í 5. sæti og Gauti Páll í því 6. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, sem tefldi fyrir Kjörís, varð efst kvenna á mótinu með 5 vinninga. Hér má sjá heildarúrslit firmakeppninnar og hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá henni til viðbótar. SSON vill þakka öllum þeim sem studdu félagið með einum eða öðrum hætti í tengslum við mótið en þar er um að ræða eftirtalin fyrirtæki og stofnanir (talin í þeirri röð sem fulltrúar þeirra höfnuðu í keppninni):

Hótel Selfoss

SG Húseiningar

Ísey skyr

Heimilistæki

SS

Brim hf.

Urður bókafélag

sveitarfélagið Árborg

VÍS

Landsbankinn

Kjörís

Hvalur hf.

Sauðfjársæðingastöðin

Dvalarheimilið Ás

Heimilið og jólin

Jáverk

Ögurvík ehf.

Solid Clouds

Auðhumla

Sumarhúsið og Garðurinn

Flúðasveppir

Fóðurblandan

Geysir glíma

Eðalbyggingar

Fiskvinnslan Kambur

Mjólkursamsalan

Gullfosskaffi

Arion banki

Vignir G. Jónsson hf.

Garðyrkjustöðin Espiflöt

Norðanfiskur ehf.

Hafnarnes Ver

Sölufélag Garðyrkjumanna

Oddgeir teflir við Braga
Oddgeir Ottesen átti veg og vanda að skipulagningu mótsins fyrir hönd SSON. Hér er hann (til vinstri) að tafli við stórmeistarann Braga Þorfinnsson.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir varð efst kvenna á mótinu. Hér teflir hún við Magnús Friðriksson.
Sigurvegari mótsins, Helgi Áss Grétarsson, er hér með svart gegn Arnari Gunnarssyni. Þetta var eina tapskák Helga á mótinu. Fjær teflir Hannes Hlífar Stefánsson (til vinstri) við Vigni Vatnar Stefánsson.
Hannes Hlífar Stefánsson með hvítt gegn heimamanninum Ingimundi Sigurmundssyni.
Yngsti keppandi mótsins, Birkir Hallmundarson (f. 2013) er hér með svart gegn Oddi Þorra Viðarssyni.